Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
fimmtudagur, nóvember 21, 2002
Undur og stórmerki gerðust. Það kom viðgerðarkall frá Riksbyggen til að kíkja á hitann í íbúðinni okkar og hvað haldiði, nú auðvitað var fínn hiti. Það var það heitt að ég gat verið á bolnum í fyrsta skiptið í tvo mánuði (var nefnilega að vaska upp og þrífa en þurfti að vera í peysu og skyrtu í morgun) en dreif mig að sjálfsögðu í peysu þegar kallinn kom. Hann mældi 21°C alls staðar. Ég sagði auðvitað (á minni frábæru sænsku, því auðvitað talaði þessi ekki ensku, helvítis Svíar!) að það gæti ekki verið, það væri alltaf skítkalt hérna og sérstaklega á kvöldin, það gæti nú ekki verið eðlilegt að þurfa að vera með húfu innandyra. Hann var alveg sammála mér (eins gott fyrir hann!) og ætlar að koma aftur á morgun og skilja eftir hitamæli sem skráir niður kuldann yfir eitthvert tímabil. Á þriðjudaginn keypti ég gæðahrærivél. Valið stóð á milli 500 SEK (4500 ÍSL) vélar og 2700 og 3000 SEK (24000 og 27000 ÍSL). Auðvitað keypti ég ódýru vélina enda stöndum við nú ekki í miklum bakstri á þessu heimili, það væri bara ágætt að geta þeytt rjóma einhvern tímann! |