Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
mánudagur, september 13, 2004
Rétt upp hönd sem finnst að Emelía ætti að skrifa eitthvað á bloggið í þessari viku! Hún er sumsé komin heim og það var yndislegt að fá hana til mín, þó mér hafi þótt hún vera orðin ansi ráðrík á dvölinni í Prag. Nema ég hafi bara vanist því of vel að ráða mér sjálf..... Eníhú þá fékk ég fullt af fínu dóti, ammligjafir og ekki ammligjafir. Víííí Í gær komu Hrönn og Georg til okkar til að snæða vöfflur og sýna sig. þau voru í fínu skapi og umræðuefnið: neðanbeltisdót að venju. Á eftir er svo fyrsti pooltími vetrarins og hlökkum við Hrönn mikið til því við í sundfélaginu Blautu gærurnar erum búnar að vera duglegar að æfa í sumar en ég held að Emelía hafi farið tvisvar í pool síðan í apríl. Því vonum við að það verði keppni og að sundfélagið eigi sjéns í helsta keppinaut sinn, Emelíu. |