Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
þriðjudagur, júlí 19, 2005
Svo gleymdi ég að segja frá aðalgjöfinni. Auður gaf mér þriðju og seinustu afmælisgjöfina á laugardaginn því hún gat ekki beðið fram á sunnudag :) Það reyndist vera gelpúði á hnakkinn minn á hjólið. Ég sá þennan púða fyrir nokkrum mánuðum og varð þvílíkt skotin í honum. Ég hef nefnilega verið með svamppúða í ár en hann er bara eiginlega ekki nógu mjúkur fyrir rassinn minn. Gelpúðinn er hins vegar algjör unaður! Og svo eignaðist ég glænýjan bróður áðan; Sony Ericsson. Hann er svartur, lítill og nettur og ekki með neitt hár. Hann sefur eins og er en verður heldur betur sprækur á morgun svo þá verður hægt að hringja í númerið mitt aftur. |