Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
fimmtudagur, ágúst 23, 2007
Mér leiðist ofsalega mikið að vera ein í Ameríku. Ég fer því snemma í vinnuna og kem seint heim. Reyndar eyði ég öllum tímanum í að vinna, ekki slæpast, hef nóg að gera. Það hefur rignt seinustu 4 daga hérna og það er alveg peysuveður úti. Ég þurfti meira að segja að sofa í fötum í nótt, mér var svo kalt. Það var ausandi rigning þegar ég fór í vinnuna í gær og fattaði ég ekki fyrr en ég kom í vinnuna að nýja 4 GB USB minnið mitt og gsm síminn minn voru í buxnavasanum mínum, rennblaut en virka samt bæði jafn vel og áður. Ég hengdi upp auglýsingu í blokkinni og okkar og setti inn auglýsingu á netið í gær, er að reyna að selja öll húsgögnin sem við keyptum á sínum tíma. Ég fékk strax svör á netinu og sá í morgun að nokkrir höfðu rifið af símanúmerið mitt hérna í blokkinni. Ég var því stórhissa að enginn hefði hringt í mig í allan dag, svo fattaði ég að ég hafði skrifað rangt símanúmer!!! Ég hengdi því upp nýja auglýsingu áðan, í lit og allt. |