Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
sunnudagur, júlí 04, 2004
Núna eru bara nokkrir tímar eftir af Danmerkurdvölinni. Hlín ætlar að baka vöfflur og ég bakaði hrísköku. Við ætlum nefnilega að hafa delicious kaffitíma. Við lendum á landinu kalda í kvöld kl. 21:50 að íslenskum tíma og er íslenska gsm númerið okkar 6638632. Veðrið hefur ekki leikið við okkur og við svo sem ekki við það heldur. Það hefur sést til sólar seinni partinn af vikunni en ekki til að við næðum að vera kaffibrúnar. Það er kannski bara af hinu góða að við höfum að mestu leyti hangið inni því ég var stungin í handlegginn af mugg (mýflugu) á föstudaginn og bólgnaði þvílíkt upp, leit soldið út fyrir að vera með hrikalega vel æfðan upphandlegg. En það er allt í lagi með mig núna, líka eins gott því við keyptum ekki flugmiðatryggingu, enda verðum við aldrei veikar. Verðum að minnast aðeins á að á föstudaginn fórum við á local barinn og stóðum fyrir skemmtiatriðum til að fjármagna drykkjuna okkar. Danirnir voru svo hrikalega hrifnir af okkur þremur að við óðum í karlmönnum og áfengi. Við gátum allt og vissum allt, vorum hrikalega góðar í pool, opnuðum bjórinn með beltissylgjunum okkar og tróðum skeiðum í nefið. Klassískt til að slá í gegn á bar, hvað vill maður meira. Munið íslenska gsm númerið okkar 6638632. Við lofum að svara ef ÞÚ hringir! |