Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
þriðjudagur, nóvember 29, 2005
Við eigum svo flott dót!!! Fengum ólífugræna, ítalska sófasettið okkar í gær og erum svo yfir okkur ánægðar með það. Færðum auðvitað röndótta sófann inn í gesta-/tölvu-/sauma-/barnaherbergið svo allir gestir fá framvegis sér herbergi. Stofan okkar er núna eins og hjá ríku fólki. Nánast allt var keypt á þessu ári og er skiptingin áberandi: fyrir brúðkaupið var allt keypt í IKEA en eftir brúðkaupið var einungis teppið keypt í IKEA, hitt var keypt í aðeins fínni búðum enda gjöf frá brúðkaupsgestunum okkar. Kíkið endilega á mynd af sófasettinu og eina bumbumynd. |