Svíþjóðarferð |
|
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
laugardagur, desember 21, 2002
Ég veit ég sendi mörgum ykkar þennan brandara í fyrra, en það eru alltaf líkur á að aðrir séu eins gleymnir og ég og svo finnst mér hann bara svo fyndinn. Santa and the Angel Not long ago and far away, Santa was getting ready for his annual trip...but there were problems everywhere. Four of his elves got sick, and the trainee elves did not produce the toys as fast as the regular ones so Santa was beginning to feel the pressure of being behind schedule. Then Mrs... Claus told Santa that her Mom was coming to visit. This stressed Santa even more. When he went to harness the reindeer, he found that three of them were about to give birth and two had jumped the fence and were out, heaven knows where to. More Stress! Then when he began to load the sleigh, one of the boards cracked and the toy bag fell to the ground and scattered the toys. Totally frustrated, Santa went into the house for a cup of coffee and a shot of whiskey. When he went to the cupboard, he found the elves had hit the liquor and there was nothing to drink. In his frustration, he dropped the coffee pot and it broke into hundreds of little pieces all over the kitchen floor. He went to get the broom and found that mice had eaten the straw it was made from. Just then the doorbell rang and Santa cussed on his way to the door. He opened the door and there was a little angel with a great big Christmas tree. The angel said: "Where would you like to put this tree fat man?" And that my friend is how the little angel came to be on top of the Christmas tree. Núna er sunnudagurinn 7. desember, sem er soldið skemmtileg tilhuxun því við Auður erum einmitt búnar að vera að ræða tímaflakk í tvo daga og það þarf kannski ekki að taka það fram að við erum ekki alveg sammála! En allavega, það er sunnudagurinn 7. desember. Við þremenningarnir (ég, Auður og Hákon) vöknuðum frekar snemma m.v. að það var sunnudagur. Hákon þurfti að ná flugvélinni heim og fylgdum við honum að rútunni. Við Auður drifum okkur svo í fyrirlestrarsalinn Aula Magna í Stockholms Universitetet og hlýddum á Nóbelsverðlaunahafana í efnafræði 2002. Fyrirlestrarnir voru að sjálfsögðu misáhugaverðir, tveir skemmtilegir (Bandaríkjamaðurinn og Þjóðverjinn) en einn frekar óskiljanlegur (Japaninn). Bandaríkjamaðurinn og Þjóðverjinn voru fyndnir og sögðu skemmtilega frá og Þjóðverjinn reif meira að segja af sér beltið og notaði sem módel fyrir prótein. Japaninn var hins vegar eins og maður hafði kannski hugsað sér fólk frá hans heimshluta, hann útskýrði ofaní kjölinn aðferðina sem hann var verðlaunaður fyrir og var sko örugglega ekkert að skafa af því og það var ekki mjög fyndið! Auk þess talaði hann með þessum hrikalega hreim með fyndum japönkum áherslum sem var ekki til að auka skilninginn. Við mæltum okkur mót við Þorvarð, sambýlismann Önnu Kristínar (móður Auðar). Hann var á leið til Brussel á fund og ákvað að millilenda í Stokkhólmi til að láta okkur hafa fullt af pökkum, Þorvarður er voða góður maður. Honum varð að sjálfsögðu boðið í litla kotið okkar og gátum við boðið honum upp á kleinur og kaffi, voða íslenskt eitthvað. Við fengum fullt af jólapökkum og er engu líkara en hérna búi fjórir smákrakkar. Einnig fylgdu með venjulegar gjafir. Ég er búin að sjá það að þegar allt er á botninn hvolft þá græðum við ábyggilega á því að hafa flutt út :-) Fengum flatkökur, laufabrauð, reyktan silung og harðfisk frá ömmu Auðar í Sandvík. Frá mömmu hennar Auðar fengum við birkireykt SS hangikjöt og jóladagatal með fullt af pökkum á. Ég persónulega borða ekki flatkökur nér reyktan fisk en harðfisk get ég sko étið og hlakka þvílíkt til hangikjötsins, maður treystir SS vörunum til að standa fyrir sínu. Við erum búnar að opna fullt af dagatalinu og höfum við alltaf fengið íslenskt nammi (himneskt alveg) og eitt jólaskraut. Í sömu viku bárust okkur pakkar frá Magga (pabba Auðar) og Ósk (frænku minni og vinkonu Auðar) og sendu þau líka fullt af íslensku nammi. Fólk er svo gott við okkur, kærar þakkir allir saman. Í gærkveldið var okkur boðið í slátur til Hrannar og Georgs. Slátrið smakkaðist mjög vel en þetta er ábyggilega fyrsta skiptið sem ég drekk kók með slátri, kók bara rúlar. Auður var ekki eins hrifin enda er slátur ekki á listanum yfir uppáhaldsrétti, meira svona á hinum listanum! En kvöldið var þrælfínt. fimmtudagur, desember 19, 2002
Það er föstudagurinn 5. desember. Eftir vinnu dreif ég mig á Scandia hótel til að hitta Auði. Hún var svo ofsalega dugleg og áhugasöm um cyclodextrin (sem hún vann með í Haga) að hún þáði samstundis boð Prófessors Þorsteins (yfirmaður hennar úr Haga) á cyclodextrin ráðstefnu. Þarna hitti ég nokkra mjög merkilega menn innan cyclodextrin geirans. Við tókum svo Hákon Hrafn (sem vann með Auði) og Kristmund (sem vinnur í Karolinska Institutet) með okkur í mat og pool á JoLo. Hákon fékk svo að sjálfsögðu að gista hjá okkur því hann var með fullt af gjöfum. Mamma mín hafði nefnilega ákveðið að nýta Hákon alveg til hins ýtrasta, hann kom með litla tösku með sínu nauðsynlegasta dóti og svo stóra íþróttatösku með gjöfum frá mömmu og pabba, Hauki bróður og ömmu&afa í sveitinni. Ég hafði nefnt það við mömmu að Hákon kæmi til okkar og að hún gæti sent hann með eitthvað smotterí sem við gleymdum í haust eins og sængurföt og skóhornið sem Ósk frænka gaf okkur í jólagjöf. Þar sem það var ekkert pláss í íþróttatöskunni (vegna jólapakkaflóðsins) tók Hákon skóhornið með í handfarangur. Hann var hins vegar stoppaður við gegnumlýsinguna og þurfti að skilja skóhornið eftir því það er að sjálfsögðu stórhættulegt vopn og með því gæti hann skaðað aðra farþega! Skóhornsins mátti hans svo vitja á heimleiðinni en það gagnast okkur Auði nú lítið. Auðvitað voru ekki bara jólagjafir í pokahorninu heldur líka venjulegar gjafir sem mátti opna strax. Við fengum jólasvuntur af því að við ætluðum að vera svo duglegar að baka, jólapottaleppa, æðislega flotta jóladúka á eldhúsborðið og stofuborðið, alls konar dropa fyrir baksturinn (kardimommu-, sítrónu- og vanilludropa), Nóakonfekt, jólakrans og súkkulaðidagatal. Já, það koma að því að foreldrar mínir teldu mig nógu stóra til að gefa mér aftur súkkulaðidagatal. Það átti víst nefnilega að hafa verið þannig að þegar ég var lítil þá át ég úr öllu dagatalinu í einu og eftir það fékk ég ekki súkkulaðidagatal heldur bara myndadagatal. Ég meina, hvaða krakki gerir þetta ekki!!! Það hefur setið svo lengi í mér að hafa ekki fengið súkkulaðidagatal eins og hinir krakkarnir en það er allt batnað núna. Við hengdum auðvitað jólakransinn á útidyrahurðina en vorum greinilega ekki alveg nógu klárar því daginn eftir lá kransinn á gólfinu og hafði hausinn á öðrum elgnum brotnað af. Við áttum sem betur fer einhvers konar alheimslím og límdum hausinn aftur á, hann er alveg eins og nýr. Það gengur hratt á Nóakonfektið enda alltaf jafn gott, sumar tegundir hverfa þó fyrr en aðra, nánast bara gestamolarnir orðnir eftir. Ég er ansi hrædd um að efnin sem ég er að vinna með séu ekkert rosalega heilsusamleg. Flest efnanna eru svo rafmögnuð að það er nánast engin leið að ná þeim úr glösunum og þar af leiðandi þyrlast þau soldið og ég anda þeim greinilega að mér. Allavega er ég búin að vera með hausverk í allan dag og ég fæ aldrei hausverk nema daginn eftir mikla drykkju sem á btw ekki við núna. Finnst ég heyra smá óánaegju med ímeilframmistödu mina. Tegar eg var yngri reyndi eg ad eiga pennavini eins og adrar fyrirmyndarstulkur sem söfnudu frimerkjum og voru i skatunum. Tad gekk yfirleitt vel framan af, eg fekk oft bref fra nyjasta pennavini minum en svo for theim ad faekka og tegar ar var lidid an tess ad eg fengi bref afskrifadi eg vidkomandi sem pennavin. Var frekar ful yfir tessu en kannski var astaedan su ad eg var aegilega lot vid ad skrifa til baka og tad tydir vist litid ad aetlast bara til ad fa bref en skrifa engin. Mer finnst samt réttlatur kvóti ad adrir skrifi mér 3-4 bréf tegar eg skrifa eitt. Tad gerist nefnilega aldrei merkilegt hjá mér en allir hinir virdast alltaf hafa fra einhverju ad segja. En nú lofa ég bót og betrun, ég lofa ad skrifa ykkur öllum fullt af bréfum og aetli ég verdi ekki bara ad skálda fréttir til ad gera tau spennandi. miðvikudagur, desember 18, 2002
Seinasta fimmtudagsmorgun í lestinni lentum vid Audur í smávegins atburdi. Audur litla var med kvef alla seinustu viku og thurfti thví oft ad snýta sér og getur madur ekki gert hlé á thví thó madur sé staddur medal fólks í lest. Thegar ferdin var hálfnud var Audur litla thví búin ad ata snýtipappírinn sinn út í hori (ég er viss um ad Audur er hrifin af lýsingunni minni !) og stökk thar af leidandi út á naestu stoppustöd og henti pappírnum í ruslid. Á medan passadi ég saetid hennar og voru vettlingarnir, húfan og trefillinn hennar thar. Haldidi ekki ad thad hafi komid einhver karlskratti og gert sig líklegan til ad setjast í saetid hennar Audar. Ég nádi ekki einu sinni ad segja meira en ”No, it´s” thegar kallinn var búinn ad hlamma sér nidur og thá byrjadi hann ad öskra á mig og ég er ad meina ad öskra. Ég áttadi mig ekki á thví hvort madurinn var ad tala saensku eda thýsku thví ég skildi ekki ord en gerdi rád fyrir thví fyrra thar sem vid erum í Svítjód. Mér vard strax illa vid karlfíflid og svaradi honum: ”I didn´t understand what the fuck you said”. Í thví tekur hann vettlingana, húfuna og trefilinn hennar Audar sem hann hafdi sest ofaná og fleygir theim í átt ad gömlu konunni sem sat á móti mér. Hún var ekki heldur mjög upp med sér vardandi framkomu kallsins og sagdi eitthvad vid hann og audvitad brást hann vid med öskrum sem ég skildi ekkert frekar. Ég skildi thó ad gamla konan sagdi honum ad vinkona mín hefdi setid tharna og ad hún hefdi skotist út ad henda eplakjarna. Annad hvort sá gamla ekki hverju Audur var ad henda eda hún er bara svona kurteis. Allir í lestinni voru audvitad fyrir löngu búnir ad snúa sig úr hálslid til ad kanna hvad gengi eiginlega á. Karlinn thagnadi loksins og thá fór ég ad tala vid Audi um hvers konar helvítis fífl hann vaeri. Thetta er nefnilega ein af theim stundum sem er gott ad kunna íslensku. Thad hefdi nú líka verid voda gott ad kunna saensku svo ég hefdi fyrir thad fyrsta skilid hvad fíflid sagdi og svo getad svarad honum. Svona mínútu sídar stód hann upp eins og ekkert hafdi í skorist og spurdi Audi hinn ljúfasti hvort hún vildi ekki setjast. Audur var svo skíthraedd vid hann ad hún svaradi ekki og stód grafkyrr á sínum stad. Karlinn stód líka. Á endanum fékk ég Audi til ad setjast í saetid thví svona fífl eiga sko ekki ad komast upp med svona dónaskap. Ekki nóg med ad hann hafi verid ruddalegur thá var hann líka ljótur gedsjúklingur og gleraugnaglámur med flöskubotna. Eftir thessa lífsreynslu höfum vid Audur labbad heim úr vinnunni. Thad tekur reyndar 3 klukkustundir hvora leid en hvad gerir madur ekki fyrir ró og frid! þriðjudagur, desember 17, 2002
Jeminn eini. Vid eigum thad eiginlega ekki skilid ad kallast bloggarar, ég hef allavega ekki skrifad neitt ad viti sídan 5. des sem thýdir ad ég hef frá alveg óheyrilega mörgu ad segja. Besta ad byrja á thví sem er hvad naest í tíma, thad er heitu fréttunum, hinar eru hvort ed er allar svo gamlar ad thaer eru ordnar skítkaldar! Í thrár vikur höfum vid hlakkad til ad Biggi og Hlín koma til okkar föstudaginn 20. des en á sunnudaginn breyttist planid örlítid. Thau koma til okkar en ekki fyrr en á sunnudaginn 22. des ef Hlín hefur tekist ad panta flug. Helvítis flugfélagid sem thau áttu pantad hjá er víst stórskuldugt og neita their sem fljúga fyrir thá ad fljúga um jólin. Seinasta laugardag vorum vid Audur og Hrönn med jólaglögg og budum hinum helmingnum af Íslendingafélaginu okkar, thad er Uppsalalidinu. Sigrún komst ekki en Snaevar, Arna og Karvel komu. Georg var einnig fjarverandi en alls ekki fjarri gódu gamni thví hann var í gufu med 18 stelpum í skólaferd. Ég smakkadi nú ekki jólaglöggid (finnst jólaglögg mjög vont) en bordadi ad sjálfsögdu thetta fína lasagna sem Audur bjó til og svo eftirréttinn minn. Eftirrétturinn átti ad vera svona djúsí marens og rjómi og ávextir (fékk uppskrift frá mömmu um daginn) en thar sem ég er frekar óvön í eldhúsinu og fylgi thví uppskriftunum vanalega í hvívetna thá var soldid fátaeklegt úrval af ávöxtum. Thad áttu sem sagt ad vera jardaber, bláber, kíwi og vínber en thar sem thad er ekki jardaberja- og bláberjatíd thá voru bara kíwí og vínber, en ég bjó thó til thennan rétt. Audvitad var farid í pictionary, höfudborgin gegn sveitalubbunum. Höfudborgarbúarnir voru betri í ad tjá sig med blýantinum en hinir med líkamanum enda líklega theirra tjáningarform ekki enn farid ad thróast út í skrifmál. Sveitalubbunum var mikid í mun ad vinna og nádu ad túlka nidurstöduna 1:1 einhvern veginn sér í vil. Thad skiptir hins vegar ekki máli hvort andstaedingurinn er varla farinn af byrjunarreitinum thegar madur vinnur, thad skiptir bara máli ad madur vinnur! Thad urdu thó engin handalögmál, allir voru vinir. Eftir leikraenu tilburdina voru sveitalubbarnir of threyttir til ad fara heim og fengu their ad gista í fína sófanum okkar og á vindsaenginni gódu. Hrönn skokkadi hins vegar heim til sín, eda allavega í lestina. Uppvaskid eftir matarbodid var alveg ógurlegt. Vid eigum nú ekki svo mikid leirtau ennthá svo skáparnir voru galtómir, engir diskar og engin hnífapör eftir. Morguninn eftir var Audur afar módurleg og eldadi beikon og egg ofaní alla. Karvel litli fékk svo piparkökur í nesti en thaer gleymdust víst kvöldid ádur. mánudagur, desember 16, 2002
Ég er líka snillingur!!! Ég kann að kópera frá templeitinu í Nördahorninu og peista í templeitið í Svíþjóðarferð og þá virkar Tjáðu þig linkurinn. Btw, þeir sem náðu þessu ekki alveg nógu vel þá er ég Emelía snillingur. Ok með hjálp Finnboga ofur- og yfirsnilla tókst mér að henda út þessum ömurlegu merkingum sem komu á hverjum pósti en ég hef enn ekki getað gert við tjáningarlinkinn. Allir sem eitthvað hafa að segja eru hvattir til að skrifa í gestabókina. Allar ábendingar um tjáningarlinka eru vel þegnar. Hann var þannig að hann virkaði ekki, sumsé, "Tjáðu þig" var á síðunni en ekki hægt að velja það. Nú birtist hann ekki einu sinni þó linkurinn sé í templatinu. grrr... sunnudagur, desember 15, 2002
|