Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
miðvikudagur, mars 26, 2003
Jæja, nú hangi ég heima og skrifa skýrslu. Það er svo leiðinlegt að ég er alveg að drepast. Í gær klikkaðist músin þannig að það var ekki hægt að færa bendilinn til hægri nema að lyfta músinni upp, slá henni í borðið og ýta mjög hratt til hægri, þá færðist hún pínulítið. Ég eyddi heilmiklum tíma í að reyna að gera við hana, þreif hana og skipti um batterí og svoleiðis græ en ekkert gerðist. Ég komst reyndar til botns í því hvert vandamálið var: rörið sem kúlan á að snúa til að senda merki er hægra megin í músinni og þegar maður ýtir henni til hægri þrýstist kúlan í áttina frá rörinu og í gær var það of langt til þess að hafa áhrif á rörið. Eftir langa mæðu gafst ég upp og ætlaði ekki að nenna að fara aftur í morgun í tölvuna út af þessu en prófaði að stinga fjandans kúlunni í músina aftur og haldiði ekki að hún hafi bara svínvirkað! Svona eru þessar tölvur dyntóttar. |