Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
fimmtudagur, maí 15, 2003
Tjáningakerfið Fengum ábendingu frá Soffíu um að hún ætti oft erfitt með að komast inn í tjáningarkerfið okkar. Eru fleiri sem hafa lent í þessu? Kerfið virkar alltaf í tölvunni minni en bara í sumum tölvum hjá Emelíu. Þeir sem vilja eitthvað tjá sig um þetta en komast ekki inn í tjáningakerfið geta skrifað í gestabókina eða skrifað okkur póst (audur_m@hotmail.com). Kosningar Er búin að vera að hlusta á rás 2 og mér finnst umræðan þar frekar undarleg. Þar er talað eins og samfylkingin hafi beðið stórkostlegan ósigur, bæði af fréttamönnum og talsmönnum samfylkingarinnar, þó þeir hafi bætt við sig 3 þingmönnum og séu nú næstum jafn stórir og sjálfstæðisflokkurinn (sjálfstæðismenn 34%, samfylking 31%). Við hverju bjuggust þeir eiginlega þarna hjá ruv og samfylkingunni? að í einu stökki myndi samfylkingin/stjórnarandstaðan ná að fella ríkistjórn sem var með 38 af 63 þingmönnum, bara af því að Ingibjörg var með? |