Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
þriðjudagur, ágúst 12, 2003
Djöfull er ég orðin ógeðslega leið á þessu lúkki á blogginu okkar. Nenni samt ekki að gera neitt í því því ég veit að ég enda í einhverju veseni af því ég kann ekki neitt á þetta nördabloggdrasl. Var að skoða mjög góðar myndir frá gay pride á íslandi frá einhverjum Árna (klikka hér ef einhver hefur áhuga). Annars er ég bara á leiðinni heim eftir enn einn vel heppnaðan lab dag. Skil ekki hvað er að gerast, verð tortryggin þegar allt gengur upp. Ætla að elda Pytt i pannan sem svíar telja vera ofursænskan þjóðarrétt en er ekkert annað en afgangar steiktir á pönnu, einnig þekkt undir nafninu járnbrautarslys/flugslys og bigsí (eða pigsí eða pugs er ekki alveg vissí). |