Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
föstudagur, nóvember 12, 2004
Gestirnir okkar fóru í gærmorgun og þegar við komum heim í gær fannst okkur ósköp tómlegt í íbúðinni. Það var alveg rosalega gaman að fá Ögmund og Kalla. Verst þótti mér að geta ekki verið með þeim alveg allan tímann þar sem við þurftum að vera smá í vinnunni. En þeir voru stórir og röltu sér sjálfir í bænum. Þeir virðast samt ekki hafa skoðað mikið því á miðvikudagskveldinu höfðu þeir nóg af orku til að spila fram á nóttu. Auðvitað verð ég að taka það fram að við Ögmundur möluðum Kalla og Auði í Sequence. Þegar ég var að fikta fyrir nokkrum mánuðum í myndasafninu okkar þá duttu út nokkrar myndir. Ég var loksins að dröslast til að setja þær inn aftur hérna. Fyrst ég var komin á þessa fljúgandi siglingu þá setti ég inn fullt af gömlum myndum: Jólamyndir frá 2001, Sjötugsafmæli afa (Jóns Eiríkssonar) 2001, Útskrift Emelíu 23.06.01 og Tiltekt í Vorsabæjargarðinum 18.05.02. mánudagur, nóvember 08, 2004
Gerðum ekkert sérstaklega merkilegt um helgina. Emelía var auðvita að vinna allan laugardaginn og kom heim klukkan hálfellefu um kvöldið. Ég dundaði mér í tvo tíma í vinnunni og fór síðan í bæinn og rápaði á milli búða. Þegar ég kom heim var næstum orðið dimmt því þeir eru búnir að taka upp þennan heimska vetrartíma sinn. Núna er eins og áður bjart á morgnanna þegar maður vaknar en svo dimmir um 4. Áhrifin sem þetta hefur er að maður fær sjokkvetrarþunglyndi. Á sunnudaginn vorum við bara heima að taka til og svoleiðis. Í kvöld koma Ögmundur og Kalli til okkar. Jibbí! Við ætlum að sækja þá á lestarstöðina rétt fyrir 8 og fara með þá heim og gefa þeim kjúklingapizzu. Jibbijei. Ég verð eitthvað lítið í vinnunni á morgun og hinni, ætla að sinna gestunum og ég býst ekki við að Frú Upptekin hafi hugsað sér að skrifa á bloggið. Næsta áætlaða færsla er því í fyrsta lagi á fimmtudaginn. |