Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
miðvikudagur, febrúar 02, 2005
Tilgangur þessa bloggs er að bæta upp hræðileg mistök sem urðu í fyrra. Þá átti Sigga vinkona afmæli 3. febrúar (eins og reyndar á hverju ári) en ég óskaði henni ekki til hamingju fyrr en 6 dögum síðar sem er náttúrulega algjörlega óásættanlegt. Sigga er ekki langrækin kona og fyrgaf mér því samstundis. Kannski væri samt þjóðráð að vera ekkert að minna hana á þetta :) Allavega, innilega til hamingju elsku Sigga! Núna er bara eitt ár í stórveislu. Fyrst ég er byrjuð að blogga þá ætla ég að nota tækifærið og monta mig og monta Auði. Í gær fengum við okkur nefnilega SS pylsur í brauði og með öllu tilheyrandi, þó ekki remúlaði því það var ekki til og er hvort eð er frekar vont hérna en í staðinn settum við íslenska hamborgarasósu, auðvitað Gunnars. Sum ykkar áætla kannski réttilega að Svíar hafi loksins vitkast örlítið og séu farnir að selja SS á götum borgarinnar. Það er hins vegar því miður einungis óskhyggja. Þetta voru nefnilega pylsur og hamborgarasósa sem við létum mömmu og pabba smygla til okkar um daginn. Afgangurinn nægði okkur í dag á morgun. Ummmmmmmm. |