Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
fimmtudagur, desember 21, 2006
 
Við Anna Eir erum búnar að vera á Íslandi síðan á mánudaginn. Aujan mín kemur til okkar á morgun ef veður leyfir en það er frekar slæm spáin okkar megin.
Þegar við Anna Eir fórum þá var 5 tíma bið á fluginu og á leiðinni lenti ég í verstu ókyrrð lífs míns, ég hélt að ég myndi í alvöru drepast. Ég var svo langt leidd að í hálfa sekúndu lofaði ég guði að ég myndi nú fara að trúa á hann ef ég slyppi lifandi en sá svo að maður á nú kannski ekki alveg að selja sálu sína og hugsaði ekki frekar um það.
Anna Eir var auðvitað alveg til fyrirmyndar alla leiðina, hún er svo skapgóð þessi elska og nær alltaf að heilla fólk í kringum sig. Það voru því þónokkrir sem heilsuðu upp á hana í flugvélinni á leiðinni á klósettið, fólk sem hún hafði kynnst á flugvellinum :)

Við Anna Eir búum á Álfhólsveginum þar til á morgun en þá förum við til Önnu Kristínar og Þorvarðar. Annan í jólum búum við svo hjá Magga og Heiðrúnu í nokkra daga og förum svo aftur til Önnu Kristínar og Þorvarðar.

Íslenska símanúmerið okkar er að vanda 6638632. Hringið endilega í okkur :)


fimmtudagur, desember 07, 2006
 
Síðan að ég lærði að skríða á laugardaginn þá get ég ekki hætt að monta mig. Í vikunni tókst mér að taka fleiri en eitt skref í einu; mjög lítil skref fyrir manninn og langt frá því stór skref fyrir mannkynið. Hluti af ástæðunni fyrir þessari snöggu framþróun er að með því að vera á fjórum fótum þá næ ég betur í videoið, mér þykir nefnilega soldið gaman að stinga puttunum þar í og ýta á alla takkana.

Fór að láta vega mig og meta í gær. Ég er 8640 g og 72 cm og hef því þyngst um 60 g og lengst um 1 cm á einum mánuði. Ég þyngist ekki mikið, hef staðið í stað í þrjá mánuði og sést það á að lærafellingarnar mínar eru horfnar. Ég borða nú alveg ágætlega en þetta er nú líklega ekkert furðulegt því ég er algjör orkubolti.

Núna er ótrúlegt sport hjá mér að láta mömmu hjálpa mér upp á lappirnar svo ég geti labbað að t.d stofuborðinu og tætt soldið. Mömmu virðist samt ekki finnast þessi leikur alveg eins ánægjulegur en er auðvitað óskaplega stolt af mér.

Á eftir koma amma og afi í Kópavogi í heimsókn til mín og verða þau fram á sunnudag.

Kíkið á nýjar myndir.


sunnudagur, desember 03, 2006
 
Er nánast alveg búin að ná mér af kvefinu sem ég fékk fyrir rúmri viku.

Á fimmtudaginn reisti ég mig við í fyrsta skiptið. Ég var að reyna að ná í eitthvað á baðkarsbrúininni þegar ég var í baði; ég greip í brúnina og hífði mig upp, ekkert mál. Mömmur mínar æptu eitthvað en ég var sallaróleg yfir þessu. Ég er sko búin að gera þetta nokkrum sinnum eftir það.

Í gær fórum við til Uppsala á árlegu jólagleðina sem mömmur mínar og 6 vinir þeirra halda. Þau eru sko ekki lengur ein því núna eru samtals 5 börn komin í hópinn: Arnar Smári (1 árs og 9 mánaða), Eiríkur Freyr (1 árs og 5 mánað), Ég (9 mánaða), Haukur Freyr (8 mánaða) og Sólveig Birta (2 mánaða).
Ég hef sko oft náð að fara á allar fjórar fæturnar en í gær tókst mér meira að segja að taka eitt skref og mér tókst næstum því að setjast á rassinn.
Ég ákvað að pína mömmur mínar ekki lengur. Þær hafa nefnilega reynt að kenna mér í marga mánuði að klappa en ég hef ekki viljað gera það. Í gær byrjaði ég svo allt í einu á því sjálf. Ég var sko búin að vera að æfa mig í laumi þegar þær sáu ekki til og núna klappa ég dagin út og daginn inn.
Það voru því miklar framfarir í gær í sveitinni.

Síðan á miðvikudaginn hafa mömmur mínar séð að það var von á einni framtönn í neðri gómi, vinstra megin frá mér séð. Í morgun fannst svo í fyrsta skiptið fyrir henni.

Fyrr í vikunni, þegar ég lá á skiptiborðinu, tókst mér að henda tannburstanum mínum í klósettið og lenti hann í kúknum mínum en mamma hafði einmitt verið að skeina mér. Ég þarf víst að fá nýjan tannbursta, sérstaklega núna þar sem ég verð að byrja að bursta nýju tönnina.

Ég er oft búin að vera að fikta í videoinu í vikunni. Ég næ nefnilega að teygja mig í það og stinga puttunum inn þar sem spólurnar fara. Ég festi reyndar puttann einu sinni og orgaði óskaplega mikið en það hefur sko ekki stoppað mig. Kannski er ástæðan fyrir því að ég reyni meira að fara á allar fjórar til að komast betur að videoinu.


Ég er búin að bæta við link á Rósu Hrefnu og Ástu Maríu frænkur mínar hérna til vinstri.

Nýjar myndir úr nóvember og desember.