Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
föstudagur, janúar 19, 2007
Hér er svar við gátunni frá í gær. Mjög góðar ágiskanir bárust, en enginn þeirra var rétt, nema þá það sem Kata sagði; konan var ég. Konan ætlaði auðvita að nota þetta dót til að róa barnið sitt í barnavagninum. Btw þá fattaði Emelía þetta um leið. fimmtudagur, janúar 18, 2007
Hér er gáta: Hvað ætlar kona að gera sem stingur pískara, flösku af munnskoli, yfirstrikunarpenna, töflutúss og eldspýtum í kápuvasann áður hún fer út ? Svar birtist síðar, þið megið giska. Í gær ætlaði ég að fara í öppna förskolan með Auju mömmu því hún hefur aldrei farið þangað. Öppna förskolan er svona leikskóli fyrir litla krakka eins og mig þar sem mömmurnar og pabbarnir þurfa ekki að fara í vinnuna heldur mega vera eftir og leika allan daginn! Því miður var lokað í gær og ég fór því bara með mömmu á róló í staðinn. Síðan sungum við "fyrst á réttunni svo á röngunni" svona 15 sinnum þegar við komum heim og ég var fljót að læra að maður á að klappa í restina af laginu, svona er ég klár! Svo er ég líka farin að gera Bö með því að halda fyrir andlitið en stundum þarf ég að loka augunum líka því ég er með svo litlar hendur. Mamma fattar það ekkert, heldur samt að ég sé týnd, hehe. þriðjudagur, janúar 16, 2007
Í dag fór ég að hitta lækninn minn. Hann vildi kanna hvort ég gæti staðið upp og hvort ég væri í lið á mjöðmunum og þvílíkt rugl sem þarf auðvita ekkert að kanna. Ég grenjaði á hann þegar hann lét mig standa upp bara til að hafa það á hreinu að hann mátti ekki halda á mér. Áður en við fórum til læknisins hittum við hina ofursænsku hjúkrunarkonu syster Karin. Hún kannaði hversu þung og löng ég er orðin. Nú er ég loks búin að ná 9 kg og er 74cm að lengd. Syster Karin sagði að það liti allt vel út hjá mér og ég væri alveg í meðalþyngd, hefði aðeins hoppað upp fyir meðallag af allri brjóstamjólkinni þegar ég var lítil en svo þegar ég fór að hreyfa mig rann allt af mér. Ég var smá rugluð því síðast þegar við hittumst var syster Karin smá fúl út í mig og Emó mömmu, sagði að ég væri of mjó, Emó mamma yrði að gefa mér meira að borða og setja enn meiri fitu í matinn. Þegar syster Karin var svona ánægð með mig sagði Auja mamma sem fór með mér, eitthvað lágt á íslensku sem ég held að ég skilji en megi ekki alveg birta á netinu. sunnudagur, janúar 14, 2007
Ég get labbað næstum alveg sjálf! Ég er farin að nota nýja vagnin sem ég fékk í jólagjöf frá ömmu og afa á Brekkulæk til að styðja mig. Ég get gengið alein ALEIN frá öðrum endanum á stofunni yfir í hinn!!!! Þá eru húsgögn fyrir og svoleiðis og mömmur mínar hjálpa mér að snúa við, ég kann það ekki alveg enn. Það er dálítið erfitt að bakka með vagninn. Kíkið á myndir af því og öðru hér og síðan fleiri myndir frá Íslandi hér. |