Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
![]() |
föstudagur, maí 11, 2007
Í morgun í öppna förskolan gerði ég hreyfingar við kalli litli könguló! Þetta er rosalegur persónulegur sigur fyrir mig, þrátt fyrir að ég hafi setið eins og steingervingur undir öllum hinum lögunum sem voru sunginn. Þetta er allt að koma hjá mér. Leikskólakennarinn minn hún Barbro kom með kenningu varðandi það að ég held mig svona mikið til hlés í öppna forskolan. Hún heldur því fram að það sé út af því að ég heiti Anna. Dóttir Barbro sem heitir Anna var mjög feiminn og tvær mömmur sem voru í öppna förskolan í morgun og heita Anna voru báðar mjög hlédrægar, önnur sagði að hún hefði meira að segja hoppað úr rólunni á leikvellinum ef það komu önnur börn því hún þorði ekki að róla ef þau skyldu vilja róla. Anna amma sem ég heiti eftir var víst líka feiminn þegar hún var lítil, hún þorði ekki einu sinni að spyrja kennarnann í skólanum hvort hún mætti fara á klósettið. En þetta er allt í lagi. Þeir sem þekkja Önnu ömmu mína vita að þó maður sé feiminn í æsku getur maður samt orðið aðal ráðarinn þegar maður verður stór. Í fyrradag pissaði ég í koppinn minn, fullt af pissi. Mömmurnar mínar voru þvílíkt stoltar og gláptu heillleingi á pissið mitt. Tvær dotlið skrýtnar. Ég veit ekki hvort ég er nokkuð að pissa meira í þennan kopp ef þær ætla að láta svona. Ég geri það amk ekki þegar eru gestir eða þegar er dregið frá. miðvikudagur, maí 09, 2007
Um helgina fór ég í afmæli til Samuels vinar míns. Hann varð tveggja ára og það kom fullt af fólki í afmælið. Ég eignaðist nýja vinkonu, hana Yvonne sem mömmurnar mínar þekkja líka. Hún hefur oft lýst því yfir að hún fíli ekki börn en ég hlustaði ekkert á það og heillaði hana upp úr skónum. Við fórum snemma úr afmælinu því Börkur bróðir Heiðrúnar ömmu kom í heimsókn um kvöldið. Mömmur mínar grilluðu fyrsta grill ársins í tilefni að því, svínalund og rjómaostfyllta sveppi. namminamm. mánudagur, maí 07, 2007
Í búningsklefanum fyrir ungbarnasund (sönn saga): Sonur konu 1: Ein sem talar íslensku eins og þú mamma! Kona 2: ertu íslensk? Kona1: Já Kona 2: Hvað heitirðu? Kona1: Svala K2: Ha? K1: Svala K2: Ha? K1:SVALA K2: Hvað segirðu, það hef ég aldrei heyrt K1: Svala, eins og fuglinn. hefurðu aldrei heyrt það nafn? K2: Ha, jú auðvitað? Hvað heitir sonur þinn? K1: [eitthvert sænskt nafn] K2: jájá, er pabbi hans sænskur? K1: já. En hvað heitir dóttir þín K2: Anna K1: Það er fallegt, er pabbinn íslenskur? K2: Það veit ég ekki. K1: Nei, maður getur auðvitað aldrei verið viss Svona er það stundum þegar eðlilegar manneskjur hitta furðufugla. Málið var sumsé að emelía er kona 2 og hitti aumingja Svölu þessa í sundi en henni heyrðist hún alltaf segja að hún héti dvala (emelía heyrir oft mjög illa) og svo vafðist henni einhvernvegin tunga um tönn þegar hún ætlaði að fara að útskýra allt með sæðingu í danmörku, að vera lesbísk, tvær mömmur og allt dæmið. Þannig að næst þegar þið lendið í einhverjum furðufulgi, munið að það gæti verið skýring á öllu ruglinu |