Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
miðvikudagur, janúar 23, 2008
 
Á mánudaginn hringdi ég í fyrirtæki sem sérhæfir sig í að útrýma skordýrum og sendu þeir mér tvær litlar pappakassagildrur með agni (lítil pilla sem lyktaði soldið af lakkrís). Mér fannst nú ekki beint merkilegt að að fá bara gildrur, vildi náttúrulega helst að hingað kæmi maður í geimfarabúningi og leitaði uppi hvert einasta kvikindi en það gerir maður víst ekki þegar um eins meinlaus dýr eins og silfurskottur er að ræða. Gildrurnar setti ég inn í skáp og þar fá þær að vera í 2 mánuði. Nú mun ég setja allt aftur inn í skápinn en verð samt áfram á varðbergi.

Ég er að blogga því ég er heima í dag. Anna Eir var með ræpu í gær, nótt og í morgun. Litla skinnið. Þessi leikskóli er greinilega algjört pestabæli og ekki hæfandi svona prinsessum eins og henni.

Auður mun vera á ráðstefnu í Dubrovnik í Króatíu 29. maí til 4. júní og ætlum við Anna Eir að fara með henni. Ég varð bara að segja ykkur frá þessu því ég er orðin svo spennt að fara. Við höfum aldrei komið til Króatíu en af myndunum að dæma þá er afskaplega fallegt þarna og svo er þægilega hlýtt á þessum tíma.


sunnudagur, janúar 20, 2008
 
Það varð ekkert úr badmintontímanum okkar Auðar í gær. Anna Eir byrjaði nefnilega að æla um kl. 19 á föstudeginum og hætti ekki fyrr en kl. 2:30 um nóttina. Það var samt eins og ekkert hefði í skorist í gærmorgun, hún söng og dansaði við útvarpsvekjaraklukkuna okkar. En þar sem hún hafði ekki mikla matarlyst og hafði nú verið ælandi þá afpöntuðum við pössunina.

Á fimmtudaginn varð ég fyrir frekar ónotalegri lífsreynslu. Ég var að ná í steikarfatið inn í skáp og varð vör við hreyfingu í fatinu. Í fatinu voru þrjár risastórar pöddur. Ég hef aldrei séð annan eins. Búkurinn var um 2 cm, fálmararnir tveir um 2 cm og svo skottin þrjú um 2 cm. Ég lýg þessu ekki, þetta voru stærðarinnar flykki. Þar sem það var ekki von á Auði heim strax og ég þurfti að nota fatið þá ákvað ég nú að fara yfir til nágrannans og fá hann til að segja mér hvers konar kvikindi þetta væru, just in case ef þetta væru skaðræðisdýr. Þó nágranninn væri Svíi þá kannaðist hann ekki við dýrin. Sem betur fer bauðst hann til að drepa flykkin fyrir mig, sem ég þáði því mér finnst svona ferlega ógeðslegt. Auður skammast sín hrikalega fyrir að ég hafi þurft að banka upp á hjá nágrönnunum til að láta drepa pöddur hjá okkur og það liggur við að Auður varni mér nú útgöngu í hvert sinn sem ég fer fram á gang :)
Ég fann síðan mynd af dýrunum á netinu og eru þetta silfurskottur. Ég hef nú séð silfurskottur áður en þær hafa verið örlitlar og ljósgráar, ekkert ógeðslegar. Þessar voru hins vegar svona.


föstudagur, janúar 18, 2008
 
Jæja þá erum við allar að hressast. Önnu Eir tókst nefninlega að smita mömmurnar sínar sem eru búnar að vera hóstandi og með horið rennandi alla vikuna. Anna Eir fór aftur á leikskólann á þriðjudaginn og er búin að vera svolítið treg að fara þangað og lítil í sér. Hún hefur ekki verið með bleyju á leikskólanum núna og hefur verið rosa dugleg að pissa í koppinn þar, ekkert slys enn.

Á morgun í hádeginu ætlar Marja að passa Önnu Eir og mömmurnar ætla í badminton, algjör lúxus. Marja er vinnufélagi Emelíu og alveg óð í að passa Önnu.


sunnudagur, janúar 13, 2008
 
Anna Eir er að hressast og fer í leikskólann á mánudaginn. Við fórum því út að versla í gær m.a. Bubbi Byggir dót en Anna Eir átti inni jólagjöf. Við keyptum okkur líka nýjan shoppingvagn (gömlukonuinnkaupapoki á hjólum) því okkar gamla var stolið í afar undarlegu innbroti. Fyrir jól var nefninlega brotist inn í geymsluna okkar. Hún er ásamt geymslum annarra íbúa húsanna hér í kring í stórri blokk hér nálægt. Geymslurnar eru gerðar úr hænsnaneti sem er neglt á trégrind, sumsé ekki mjög rammgerðar. Þegar við ætluðum að sækja ferðatöskurnar okkar út í geymslu fyrir íslandsferðina okkar um jólin var búið að klippa á keðjuna og brjóta lásinn sem við notuðum til að læsa henni. Þarna inni vorum við með 4 rándýrar samsonite ferðatöskur, nánast ónotaðan og skítdýran barnabílstól, gamla en góða skíðaklossa og ýmislegt annað verðmætt. Þjófarnir litu hins vegar ekki við þessu dóti en stálu í staðin glerskermi af gömlum IKEA standlampa + perustæði, litlum málmskermi af lesljóshluta sama lampa og útjöskuðum, ískrandi, gömlum og ljótum shoppingvagni. Afar undarleg hegðun. Þar að auki voru þeir greinilega með klippur til að klippa á þykku keðjuna okkar en notuðu sér ekki auma hænsnanetið. Mjög skrýtið að hafa fyrir því að klippa sundur keðju og lás og stela síðan því alla verðlausasta í geymslunni.
Ég hef áður lent í innbroti en þá var brotist inn hjá mér og mínum fyrrverandi þegar ég var í háskóla íslands, og hvolft úr ýmsum ílátum en ekkert tekið nema nokkrir geisladiskar, bjór og playboyblöð. Líka afar undarlegt. Þeir sem brjótast inn hjá stúdentum eru kannski ekkert svo klárir.


laugardagur, janúar 12, 2008
 
Ég er búin að bæta við nokkrum myndum frá Eiríki.


fimmtudagur, janúar 10, 2008
 
Og hér nokkar myndir. Meira síðar


 
Jibbí, ég get bloggað heima! Þessi frábæra ferðatölva sem ég fékk í afmælisgjöf er bara betri en heimilistölvan okkar, að minnsta kosti fæ ég að blogga á henni.

Við erum semsagt komnar heim eftir yndislega ferð til íslands. Við gerðum þetta venjulega, átum og átum og átum, heimsóttum fólk og höfðum það æðislega gott. Takk allir fyrr að taka svona vel á móti okkur eins og alltaf. Aumingja Anna Eir náði sér í kvef á íslandi og hún hefur enn ekki farið á leikskólann sinn. Við höfum verið tvær heima og slappað af. Við erum búnar að taka upp úr öllum töskunum og skoða fínu jólagjafirnar okkar.

Flugið gekk vel þó Anna hafi verið veik því hún svaf mestallan tímann. Töskurnar voru 80kg, nákvæmlega eins og við máttum taka með okkur og samt var ein taska eftir á íslandi! Til að koma öllu þessu dóti á flugvöllinn þurfti tvo bíla. Sem betur fer var Þorvarður á leiðinni til london og við gátum nýtt hann og sluppum við að taka rútuna. Þorvarður gat síðan fylgt okkur að hliðinu. Við tókum síðan leigubíl frá Arlanda flugvellinum hér, vorum svo heppnar að ná einum sem var með barnabílstól og var risastór svo við komum öllu dótinu fyrir.

Ætla að reyna að setja inn einhverjar myndir seinna í dag.