Svíþjóðarferð |
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
fimmtudagur, nóvember 28, 2002
Við gerðum alveg meidjör innkaup áðan. Við kláruðum allar jólagjafirnar til Íslands, keyptum líka lítið strauborð, smá jólaskraut og dömubindi (þ.e. hálsbindi). Þegar við fórum á árshátíð deCODE í apríl gerðum við dauðaleit að svona hálsbindum en fundum hvergi og svo finnur maður þetta þegar maður er ekkert að leita og það í öðru landi. Já, og svo fann ég svona tæki til að taka hnökra af fötum, ég er búin að vera að óska mér í mörg ár að þetta sé til og svo ramba ég bara á þetta, auðvitað keypti ég það. Við erum greinilega alltaf að rekast á celebið. Núna var dökkhærða stelpan sem lék annað aðalhlutverkanna í “Fucking Åmål” að versla í Åléns tveimur metrum frá mér, ég þekkti hana strax, ég hef svo næmt auga fyrir fræga fólkinu! Hún var með lítinn krakka í kerru, þær eru kannski búnar að ættleiða saman! |