Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
fimmtudagur, júlí 28, 2005
 
Jæja góða fólk. Við erum löngu komnar til Íslands, gleymdum okkur bara í góða veðrinu. Ef þið hafið áhuga á að tala við okkur getið þið hringt í síma 6638632.


þriðjudagur, júlí 19, 2005
 
Svo gleymdi ég að segja frá aðalgjöfinni. Auður gaf mér þriðju og seinustu afmælisgjöfina á laugardaginn því hún gat ekki beðið fram á sunnudag :) Það reyndist vera gelpúði á hnakkinn minn á hjólið. Ég sá þennan púða fyrir nokkrum mánuðum og varð þvílíkt skotin í honum. Ég hef nefnilega verið með svamppúða í ár en hann er bara eiginlega ekki nógu mjúkur fyrir rassinn minn. Gelpúðinn er hins vegar algjör unaður!

Og svo eignaðist ég glænýjan bróður áðan; Sony Ericsson. Hann er svartur, lítill og nettur og ekki með neitt hár. Hann sefur eins og er en verður heldur betur sprækur á morgun svo þá verður hægt að hringja í númerið mitt aftur.


mánudagur, júlí 18, 2005
 
Ég vil bara þakka öllum fyrir fallegu afmæliskveðjurnar. Það er ofsalega skemmtilegt að sjá hversu margir muna eftir manni :)
Fyrir þau ykkar sem eruð ekki með allar upplýsingar á hreinu þá varð ég 29 ára í gær. Við gerðum mest lítið, áttum bara rólegan dag með smá rölti um hverfið. Gátum þó ekki verið mjög lengi úti vegna dropanna úr loftinu sem breyttust síðan í þessa líka hellidembum með þrumum. Við sluppum þó inn áður en flóðið byrjaði.

Á laugardaginn fengum við skemmtilega heimsókn. Arna, Karvel og Arnar Smári gerðust gistigestir hjá okkur. Litla fjölskyldan var að fara í smá sumarfrí á suðurhluta Svíþjóðar og byrjaði fríið hjá okkur. Arnar Smári (5 mánaða) brosti og hló allan tímann, alveg hreint með endemum glatt barn en það spilaði líklega smá inn í hversu skemmtilegt var hjá okkur.
Auður bjó til yndislegan kjúkling og eftirá spiluðum við póker. Arna og Karvel eiga spilapeninga og virðast vera orðin solið sleip í þessu því við Auður töpuðum á undan þeim.
Ég fékk meira að segja afmælisgjöf frá þeim, einn disk í sparistellið okkar. Jibbí, núna getum við boðið fleira fínu fólki í mat.


sunnudagur, júlí 17, 2005
 
Hér eru komnar myndir af ráðstefnunni sem ég var á í Cambridge. Þær eru flestar af þessum fínu heimavistum eða college sem eru út um allt. Ég var samt ekki bara að túristast þarna, líka að nördast, ég lofa. Þetta college system þeirra er víst þannig að fólk tilheyrir vissum college og þar býr það og borðar og á sér eigin leiðbeinanda sem hjálpar þeim við námið. Síðan fer fólk á fyrirlestra í University of cambridge. Doltið öðruvísi kerfi en maður á að venjast.
Ráðstefnan var rosa góð, hitti þar Íslending, varð smá brún og fræddist smá. Týndi vegabréfinu mínu 3 klst áður en flugið mitt átti að fara, eyddi 1 klst. í að leita að því, fann það í töskunni minni og dó næstum því úr stressi við að ná flugvélinni. En allt er gott sem endar vel og ég komst heim.


föstudagur, júlí 15, 2005
 
Aujan mín kom heim að miðnætti í gær, þreytt en ánægð með ferðina. Ég fékk annan hluta í afmælisgjöf, “The Science Book” þar sem farið er yfir helstu uppgötvanir í vísindum seinustu 6000 þúsund árin. Alveg hreint frábær bók. Um daginn fékk ég hermannagræn heimaföt frá Auði; síðar buxur og toppur með blúndu hlýrum. Hún er fyrir löngu búin að fá leið á því að sjá mig oft heima í minna fínum náttfötum og var þetta því kærkomið. Ég er alveg ótrúlega gella í þessu.

Þegar ég rölti mér með hjólið mitt í gegnum Bergshamra centrum (centrumið okkar sem er í 5 mín göngufjarlægð) í morgun þá staðnæmdist ég allt í einu því mér fannst eitthvað hreyfast fyrir framan mig. Auðvitað höfðu mín haukfráu augu rétt fyrir sér. Á miðri gangstéttinni var lítill íkorni sem labbaði sér um og hann var sko ekkert að flýta sér. Honum fannst hann greinilega eiga bæinn því vanalega eru þessi kvikindi skotfljót í burtu þegar maður nálgast þau. Mér þótti þetta að sjálfsögðu afar skemmtilegt því íkornar eru ein uppáhalds dýrin mín. Ég fyldist því með þeim stutta labba að rósarblaðabunka og hvíla sig um stund og síðan hlaupa beint inn í videobúðina. Ég veit ekki af hverju hann hélt að þetta væri sniðug hugmynd, en þessi er með þeim frakkari íkornum sem ég hef séð. Kannski hafa hinir íkornarnir manað hann upp í þetta en líklega fæ ég aldrei að vita það. Fleira fólk hafði tekið eftir íkornanum mínum og margir þustu að videobúðinni til að sjá hvað hann tæki núna til bragðs. Fólk hélt líklega að íkorninn hefði kannski fundið fimmtíu kall og ætlaði að leigja sér spólu því fólkið virtist ekkert vera að reyna að hjálpa vini mínum út, nei, nei, hann var bara cirkusdýrið þeirra.
Ég þurfti að halda áfram leið minni og get því miður ekki frætt lesendur um afdrif íkornans hugaða. Þó þykir mér líklegt að hann hafi tekið nokkur karatespörk á gólfinu í videoleigunni, bara til að fólk viti hver ræður.


fimmtudagur, júlí 14, 2005
 
Loksins er veðrið að skána hérna. Það er hálfskýjað og von á skúr í dag. Það er því mun svalara í vinnunni, alveg bærilegt að vera hérna núna.

Seinasta föstudag vorum við Auður boðnar í picnic-grill. Sue-Li og Tobbe, vinnufélagar Auðar, buðu okkur í rosalega flottan mat, þau gerðu meira að segja sérstaka sósu með kjötinu. Við fórum í garð við vatn (ekki beint góð lýsing þar sem það er vatn út um allt í Stokkhólmi :) þar sem fyrirfannst fullt af öðru fólki enda rosalega gott veður og fallegt um kring. Það var þó ólíft annars staðar en í skugganum. Alls konar fuglar voru líka á sveimi og þurfti að fylgjast grant með að þeir nöppuðu ekki steikunum af grillinu. Eitthvað virtust þeir hafa verið sárir yfir því að við vildum ekki gefa þeim mat svo einn tók sig til og dritaði svona líka rosalega á einn pokann okkar, alveg nokkrum centimetrum frá okkur.
Þið sem verðið í brúðkaupinu okkar getið skoðað fyrrnefnd Sue-Li og Tobbe því þau munu einnig vera þar, þau eru einu sænsku gestirnir sem koma. Það var nú reyndar bara einum sænskum boðið í viðbót svo afföllin eru lítil.

Ég hef gjörsamlega ekki gert neitt síðan að Auður fór. Ég hef vaknað seint, dröslað mér í vinnuna, hangið í vinnunni til kvöldmatarleytis og farið heim að horfa á sjónvarpið. Ég hef ekki einu sinni eldað.

Annars þýðir ekkert að hringja í gsm-inn minn næstu daga. Ég missti hann í jörðina í gær og eftir það virkar hann bara alls ekki. Við erum búnar að ákveða að kaupa okkur báða nýja síma og verður það ábyggilega gert á morgun eða laugardaginn. Maður getur ekki lengur verið lengi án gsm :)


mánudagur, júlí 11, 2005
 
Helgin var sjóðheit og reyndi ég hvað ég gat að halda mig frá sólinni. Ég var t.d. inni allan gærdaginn, aðallega v.þ.a. Aujan mín var ekki heima. Auður þurfti að fara að heiman kl. 3 aðfararnótt sunnudagsins til að fljúga til Englands þar sem hún verður á ráðstefnu í Cambridge þangað til á fimmtudaginn. Ég endurheimti því yndið mitt seint á fimmtudagskvöld.
Á fimmtudaginn fórum við Auður í heimsókn til Eiríks Freys sem við ætlum alltaf að kalla Eirík Fjalar. Hann var ósköp lítill og sætur og var alveg til fyrirmyndar, heyrðist ekkert í honum allan tímann. Við vorum ekki einar um að vera í forvitnisleiðangri, Uppsalabúarnir birtust allir 5 og voru auðvitað pantaðar nokkrar fjölskyldupizzur.

Annars var Biggi litli frændi minn (sonur Ingu föðursystur og Gumma) að hefja Interrail ferð fyrir stuttu. Ferðaplanið hljómar rosalega spennandi og skil ég ekkert í því af hverju mér hefur aldrei dottið í hug að gera eitthvað svona. Þið getið kíkt á bloggsíðuna hjá krökkunum og fylgst með.


fimmtudagur, júlí 07, 2005
 
Hér er búin að vera sól síðan fyrir helgi. Ég er samt búin að vera ferlega lítið í sólbaði og verð því kannski ekkert brún þegar ég kem til íslands eins og ég hafði ætlað mér. Á sunnudaginn er ég að fara á ráðstefun í Cambridge og kem ekki heim aftur fyrr en á fimmtudagskvöld. Ég flýg með gæðaflugfélaginu Ryan air þannig að ég þarf að leggja af stað að heiman um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags, því flugvöllurinn sem ég flýg frá er lengst í rassgati. Fyrir alla nörda, þá ætla ég meðal annars að skoða original handrit sem newton skrifaði.

Fyrir tveimur vikum var ég á annari nördastefnu hér í svíþjóð. Hún var haldin á mjög fallegum stað við stórt vatn fyrir norðan stokkhólm. Ég var algjör hetja og synti út í litla eyju á vatninu ásamt svíunum. Það var drullukaltog ég var rosalega stolt af mér. Eníveis á þessari ráðstefnu var kall sem kenndi kúrs sem ég var á í fyrra og hann var á leiðinni til íslands ásamt fjölskyldunni sinni. Ég gerðist fulltrúi ferðamálaráðs og sagði þeim að fara hingað og þangað á íslandi. Mestur tími fór samt í að reyna að finna gistingu fyrir þau fyrstu nóttina þeirra sem var 3 dögum eftir ráðstefnuna. Þau eru fimm og mér tókst ekki að finna gistipláss í reykjavík fyrir minna en 20 þús fyrir eina nótt! Djöfullega dýrt. Moral of the story: Ekki eignast 3 börn og alls ekki gerast túristi á Íslandi.


sunnudagur, júlí 03, 2005
 
Það er búin að vera þvílík sól um helgina. Við hvítingarnir fórum meira að segja út í gær í klukkutíma með teppi, kodda og lesefni. Við erum báðar viðkæmar fyrir sól, brennum auðveldlega svo við þorum aldrei að vera lengur en klukkutíma í sólbaði, auk þess er einfaldlega ógeðslega leiðinlegt í sólbaði.
Ég fór aðeins í vinnuna í dag en annars höfum við bara slappað af þessa helgi, nenntum ekki einu sinni í bæinn til að skoða dót sem okkur langar í í brúðkaupsgjöf.

Ég verð að segja sögu af því hversu yndisleg hún Aujan mín er. Í gær skruppum við út í búð. Við vorum nú ekki komnar langt frá húsinu okkar þegar við gengum fram á stelpu á okkar aldri sem var hreinlega drekkhlaðin dóti. Við vorum með gömlukonu shoppingvagnen okkar því við nennum alls ekki að bera neitt úr búðinni. Stúlkugreyið var í einhverjum vandræðum með að komast áleiðis með allt dótið sitt, enda steikjandi hiti og hún búin að labba smá spöl frá lestarstöðinni með allt saman. Ekki varð ég baun hissa þegar Aujan mín vatt sér að stelpunni og bauðst til að hjálpa henni. Shoppingvagnen var fylltur og ég neyddist auðvitað til að bjóðast til að bera poka því ekki gat ég bara gengið tómhent við hliðina á stelpunni og hetjunni henni Auði. Já, svona er hún Auja mín, alltaf að hjálpa fólki. Og ég heppin að fá að læra um hjálpsemi af fyrstu hendi. Eftir þetta góðverk gat hún ekki látið vera að vökva veikluleg blóm Stokkhólmsborgar sem eru á gangstéttinni fyrir utan húsið okkar. Þegar maður er kominn á skrið er greinilega erfitt að hætta :)


föstudagur, júlí 01, 2005
 
Við fengum fréttir af nýju fjölskyldunni í Stokkhólmi í gær. Sonur Hrannar og Georgs hefur hlotið nafnið Eiríkur Freyr og var hann 47 cm og 3.5 kg við fæðingu og er líklega svipað núna :)

Ég fann afar áhugaverða síðu á netinu þar sem er talað um nafngiftir Íslendinga. Síðan er á sænsku og ættum við því sem búum hérna að senda öllum þeim Svíum sem við þekkjum linkinn. Hversu oft hafið þið t.d. verið spurð að því hvort maður virkilega hafi ekkert ættarnafn heldur beri nafn föðurs síns sem eftirnafn og vanalega fær maður þá spurninguna: og hvernig finnið þið þá hvert annað í símaskránni?!!!