Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
föstudagur, september 30, 2005
 
Og svo viljum vid audvitad oska ogumundi fraenda til hamingju med daginn. Kalla hann ogmund en ekki ogga i dag af thvi ad madur a vist ad vera godur vid gamalt folk og gera eins og thad vill


 
Her eru svo myndir ur islandsferdinni okkar (f. utan brudkaupid)


mánudagur, september 26, 2005
 
Og her eru myndir fra Tobbe saenska brudkaupsgestinum okkar ur islandsferdinni theirra


sunnudagur, september 25, 2005
 
Hér eru tvær haustmyndir úr hverfinu okkar


 
Hér eru myndir úr brúðkaupsveislunni okkar í stokkhólmi


þriðjudagur, september 20, 2005
 
A laugardaginn vorum vid med veislu fyrir svianna okkar v. brudkaupsins. Vid leigdum sal i gegnum vinnuna hennar Emeliu og thegar vid forum ad skoda hann viku fyrir partyid vantadi i hann alla gluggana! Thad var verid ad skipta um tha og i stadinn voru sponaplotur fyrir gatinu thegar partyid var. Ekki mjog kosi. Annars for partyid vel fram, svona fyrir utan thegar Mia djammvinkona okkar fann sig knuna til ad raeda um strap-on vid kaerustu professorsins mins, virdulegan laekni a fimmtugsaldri. Vid Emo vorum allan lau ad undirbua matinn sem flestir lystu anaegju med og allan sun ad thrifa. vid fengum fullt af finum pokkum, standlampa sem vid hofdum oskad okkur og utekt i Duka og Åhléns, nudd og tvaer orkediur sem okkur mun liklega takast ad drepa fljotlega.


miðvikudagur, september 14, 2005
 
Við Auður fórum í sónar í gær til að meta hvort Gússí væri eðlileg að stærð og hvort allt væri í lagi. Það er varla hægt að vera fullkomnari; útreiknaður aldur var 16 vikur og 6 dagar en hárrétt svar er 16 vikur og 5 dagar. Gússí leit eðlilega út og hafði heldur betur gaman af áhorfendunum því hún/hann lék alls kyns kúnstir: hoppaði, sparkaði, veifaði og tuggði.
Gússí er sem sagt vinnsluheiti næstu mánuði þar sem við vitum ekki hvort kynið það verður. Hjúkkan neitaði að áætla kynið því hún sagði að Gússí væri of lítil(l) ennþá. Auður er fullviss um að þetta sé stelpa og ákvað nafnið en ég held hins vegar að þetta sé strákur. Ég vona bara að það að ég kalli tilvonandi strákinn okkar stelpunafni eigi ekki eftir að valda honum hugarangri í framtíðinni ;)

Þið getið skoðað sónarmyndirnar hérna. Svo getið þið kosið í dálknum hérna til vinstri um hvort þið haldið að Gússí sé stelpa eða strákur. Að sjálfsögðu eru vegleg verðlaun handa þeim sem giska á rétt, nefnilega að fá að passa Gússí ótal skipti í framtíðinni. Hinir sem giska á rangt þurfa ekki að örvænta því skammarverðlaunin eru einnig frábær: passa Gússí þegar hún/hann er ekki í pössun hjá sigurvegurunum.


mánudagur, september 12, 2005
 
Ingimundur og Elísabet eignuðust rosa sætan strák á föstudaginn. Til hamingju öll sömul!