Svíþjóðarferð |
|
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
fimmtudagur, mars 23, 2006
Í dag er ég þriggja vikna. Mömmum mínum finnst ég vera orðin svo stór og reyndar soldið feit. Ég fór í mælingu í dag hjá ungbarnaeftirlitinu og er orðin 56 cm og 4370 g. Ég hef því stækkað um 2 cm og þyngst um 250 g á 6 dögum. Hjúkrunarkonan sagði að ég væri rosalega fullkomin, væri aðeins yfir meðalkúrvunni en innan eðlilegra marka auðvitað og stækkaði alveg í samræmi við það. Setti inn nokkrar myndir frá í dag. miðvikudagur, mars 22, 2006
Þetta er nú meira ástandið á mömmu. Hún var orðin stálslegin á sunnudaginn en fékk stálma í hitt brjóstið í gær. Núna líður henni aftur orðið vel. Vonum að þetta komi ekki fyrir aftur. Amma Anna stóðst doktorsvörnina sína með glansi og allir voru rosalega ánægðir með hana og doktorsritgerðina hennar. Innilega til hamingu Doktor Amma! Amma verður fram á laugardag í útlandinu til að gera smávægilegar breytingar en sem betur fer verður hún ekki alein allan tímann því afi ætlar að fara til hennar. Eftir það hefur amma engar afsakanir, hún og afi verða að fara að koma í heimsókn til mín. Og afi Maggi átti afmæli í gær, varð 51. Mamma hringdi auðvitað í hann en ég var sofandi og gat því ekki að tala við hann. Ég segi því núna: Til hamingu með afmælið afi! Loksins fórum við mamma aftur út. Núna skruppum við útá bensínstöð því þar sækir maður pakkana sína (en ekki hvar!!!). Ég fékk nefnilega pakka frá Ósk og Maju mömmu hennar. Ósk gaf mér handklæði og þvottapoka í stíl, einmitt það sem mig vantaði því ég átti bara eitt handklæði fyrir. Maja gaf mér ofsalega fína vettlinga, sokka og húfur sem hún prjónaði sjálf. Allt passar alveg glymrandi vel á mig. Takk, takk, góðu konur! Þið getið séð nokkrar nýjar myndir hérna. sunnudagur, mars 19, 2006
Í gær varð Emelía mamma allt í einu veik með beinverki, illt í brjóstinu, hausverk og ískallt á puttunum og tánum. Mamma fékk líklega stálma í brjóstið og reyndi að lina bólgurnar með rafmagnshitateppinu hennar Auju mömmu og með því að mjólka sig með fínu brjóstapumpunni sinni. Ég fékk því mjólk þrisvar sinnum úr pela því mamma þurfti að sofa voða mikið. Mér fannst pelinn barasta allt í lagi og get því greinilega einhvern tímann farið í pössun þegar mömmur mínar vilja gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég vona að amma Anna sé hætt að vera veik því hún er í Englandi núna að undirbúa sig fyrir doktorsvörnina sína á þriðjudaginn. Gangi þér ofsalega vel amma! Arna, Karvel og Arnar Smári komu í heimsókn til mín í dag. Þau gáfu mér heldur betur samfellu við hæfi, það stendur nefnilega "sötnos" á henni en það þýðir "sæta". Þau komu líka með rosalega góðar vatnsdeigsbollur sem þau bökuðu sérstaklega fyrir Emelíu mömmu!!! Þið getið séð nokkrar nýjar myndir hérna. |