Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
föstudagur, apríl 07, 2006
 
Á þriðjudaginn fórum við Emelía mamma í bæinn til að ná í allar myndirnar af mér sem voru í framköllun. Ohhh, ég er svo sæt á þeim öllum. Ég var rosalega stillt enda sef ég nokkuð vel í vagninum. Skemmtilegast fannst mér að ná í Auju mömmu í vinnuna.

Í gær varð ég 5 vikna. Sue-Li og Tobbe, sem vinna með Auju mömmu, komu í heimsókn til mín í gær. Ég fékk rosalega flott bútasaumsteppi frá þeim sem Sue-Li gerði sjálf. Sue-Li fannst ég ógurlega sæt og var alveg heilluð af mér en Tobbe þorði ekki að halda á mér, hélt að hann myndi missa mig í gólfið.

Áðan var smá fjör hjá okkur því við gerðum handa- og fótafar í bókina mína. Ég var smá óþekk og ældi og pissaði á bókina en það eru bara góðar minningar.

Hérna eru myndir úr fimmtu vikunni minni og hérna úr þeirri sjöttu.


mánudagur, apríl 03, 2006
 
Við mamma fylgdum langömmu Mundu og Sollu og Önnu í rútubiðskýlið í dag. Það hefur verið mikið stuð að hafa þær og vona ég að þær komi aftur í heimsókn til mín því ég lærði svo ofsalega mikið hjá þeim.
Ég fékk besta nætursvefninn minn hingað til; svaf alein (þ.e. í rúminu en ekki ofaná bringunni á Auju mömmu) í 3 + 2 + 1,5 klst.
Í morgun hraut ég á öxlinni á Önnu en það lærði ég hjá ömmu Mundu, sem hrýtur ábyggilega hæst í heimi.
Solla kom með videoupptökuvélina sína og var ofsalega dugleg að mynda mig bak og fyrir í ferðinni. Nú eru sko til heimildir fyrir því hversu þæg og dugleg ég er; ég hlakka sko til að sjá myndbandið.

Kíkið endilega á myndir af öllu fína dótinu sem ég fékk og mynd af Sollu frænku að taka af sér maska.


sunnudagur, apríl 02, 2006
 
Eiríkur og Hrönn komu í heimsókn til mín á fimmtudaginn. Þau voru rosa skemmtileg. Eiríkur var hálf nakinn hérna eins og vanalega og var eitthvað að fíflast en ég drakk bara og svaf allan tímann.

Á föstudagsmorgun fórum við Emelía mamma á fyrsta foreldrahópinn okkar. Það var ágætt að hitta aðra krakka og tala við mömmurnar. Svo fór ég í mælingu og er orðin 4705 g og 57 cm. Ég tók soldinn vaxtarkipp skv. línuritunum og hef stækkað um 1 cm og þyngst um 335 g á 8 dögum.

Eftir hádegi á föstudaginn komu vitringana þrír frá Íslandi: langamma Munda og Anna og Solla ömmusystur mínar. Það varð einhver misskilningur svo þær biðu í klukkutíma í rútuskýlinu eftir mér og mömmu en við mamma biðum rólegar heima eftir að þær hringdu. Þetta reddaðist síðan allt saman og það var mikið gaman þegar þær komu loksins. Við erum í miklum plássvandræðum núna því með í ferðinni var ógrynni af pökkum handa mér, flest föt en líka púsl og geisladiskar. Ég er ansi hrædd um að mömmur mínar þurfi að kaupa eitthvað til að rýma allt nýja dótið mitt :)
Það þarf nú varla að taka það fram en þær eru allar alveg vitlausar í mig, finnst ég voðalega mikil fegurðardís og slást um að hafa mig. Anna frænka er búin að kenna mér að nota snuð og ég hjalaði tvisvar hjá Sollu frænku.
Ég er líka nýfarin að brosa stundum þegar ég er vakandi.

Ég er með svo mikið hár og svitna því stundum alveg helling eftir að hafa legið lengi. Seinasta mánudag prófuð því mömmur mínar að því mér með sjampói og er hárið á mér því soldið líflegra, allavega í smá stund :)

Erum búnar að setja fullt af nýjum myndum inn. Hérna frá 4. vikunni minni, hérna frá 5. vikunni minni og hérna í Svíþjóðarsmöppuna okkar fara myndir sem eru ekki af mér.