Svíþjóðarferð |
|
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
föstudagur, apríl 28, 2006
fimmtudagur, apríl 27, 2006
Afi Eiríkur er búinn að vera í heimsókn hjá mér í 3 daga en hann fór heim í dag. Við vorum alveg rosalega góðir vinir og afi tók alltaf upp hanskann fyrir mig þegar mömmur mínar töldu mig vera óþekka. Ég fékk fullt, fullt af fínum fötum frá ömmu og afa sem afi keypti úti í Manchester og litli bróðir minn eða systir mín, sem Auja mamma ætlar að búa til handa mér síðar, fékk húfu og skó. Í gær rölti ég með Emelíu mömmu og afa alveg fullt í miðbænum því veðrið var svo frábært og um kvöldið grilluðum við í fyrsta skiptið á árinu. Afa fannst ég vera orðin ofsalega stór og heldur betur þroskaðri síðan hann sá mig síðast (ég heyrði hann segja það í símann við ömmu) enda var ég þá bara viku gömul en er átta vikna núna. Mömmur mínar tóku engar myndir af okkur afa því afi tók svo mikið á sína myndavél og ætlum við að fá myndir hjá honum. Ég lofa ykkur alveg ofsalega sætum skotum af mér í næstu viku. Takk fyrir heimsóknina, afi, sjáumst vonandi fljótt aftur. Ég setti inn nokkrar myndir af því sem ég hef gert seinustu daga. Á sunnudaginn ætlaði Auja mamma að skola mig í vaskinum en þá varð mér skyndilega mál að kúka og kúkaði á hana, vaskinn, klósettið, gólfið, gólfmottuna og tannkremstúpuna. Á mánudaginn fórum við Emelía mamma í bæinn í góða veðrinu með Hrönn, Eiríki, Höllu vinkonu Hrannar og Helgu Diljá dóttur hennar. miðvikudagur, apríl 26, 2006
Jæja, elsku lesendur. Það er ansi langt síðan að ég eða Auður blogguðum enda höfum við engar fréttir að færa þar sem hún Anna Eir kjaftar öllu í ykkur áður en okkur gefst tækifæri til að skrifa. Byddí spurði í kommenti í gær hvort ég ætlaði ekki að halda upp á XX afmæli í sumar. Að sjálfsögðu held ég upp á afmælið mitt, ég hef gert það allavega seinustu 10 ár (man ekki lengra) fyrir utan í fyrra þegar ég var með mikla meðgönguógleði. Mér þykir afar skemmtilegt að halda veislu til að sjá allt það góða og skemmtilega fólk sem við þekkjum. Ég er ekkert feimin við að tilkynna það að XX stendur sem sat fyrir töluna 30. Já, ég verð þrítug í sumar og gleðst bara yfir því. Ég er ekki með neinn aldurskomplex þó síður sé, sérstaklega þegar Svíar verðlauna svona háaldrað fólk með því að gefa því 4 auka sumarfrídaga! Veislan verður sem sagt laugardaginn 15. júlí en ég á afmæli 17. júlí. Veislustaður er óákveðinn en ég mun tilkynna hann um leið og ég veit. Það er sem sé engin tilviljun að við komum um þetta leyti til Íslands ;) |