Svíþjóðarferð  | 
|
| 
 
	Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins. 
	
	
 
 
 Ýmislegt 
 Linkar 
  | 
	
	
    	 laugardagur, maí 27, 2006 
   	
	Í gær var Auja mamma í fríi. Svíar eru nefnilega soldið skondnir; þar sem það var frí á fimmtudaginn og frí í dag þá var frí í gær, þ.e.a.s. föstudagurinn er ekki lögbundinn frídagur en klemmdist milli tveggja frídaga og þá var frí á honum. Auðvitað var ég mjög ánægð með það því það þýddi að ég hafði báðar mömmur mínar í að snúast í kringum mig. Við fórum allar í verslunarkjarna að leita að hægindastól svo það sé þægilegra að gefa mér brjóst inni í svefnherbergi. Þar sem allt tekur svo langan tíma með mig þá náðum við bara að fara í eina húsgagnabúð af þremur því við stoppuðum svo lengi á McDonald's. Við verðum bara að skipuleggja okkur betur næst! Á föstudeginum fyrir viku hló ég í fyrsta skiptið í vitna viðurvist. Ég var í Hemköp (matvörubúð) með Emelíu mömmu þegar ég allt í einu skellihló og hefur mamma ekki hugmynd af hverju. Seinasta mánudag hló ég síðan rosalega mikið og lengi þegar Kata frænka var að leika "bö" við mig enda er sá leikur afar fyndinn. Auja mamma lék líka "bö" við mig síðar um kvöldið og hló ég þá álíka mikið. Öllum fannst rosalega fyndið og ótrúlega sætt að heyra mig hlæja. Nýjar myndir. fimmtudagur, maí 25, 2006 
   	
	Í dag er ég tólf vikna, jibbí. Kata og Ari eru búin að vera í heimsókn hjá mér síðan á mánudag en þau fóru í morgun. Ég náði nú ekki að kveðja þau því ég var steinsofandi og segi því núna bara "bless, bless og takk kærlega fyrir komuna". Það var rosalega gaman að hafa þau. Fyrst var ég með varann á og hágrét þegar ég sá þau en svo fattaði ég strax að þau komu í friði og þá fengu þau oft að halda á mér. Tvær nýjar myndir. mánudagur, maí 22, 2006 
   	
	Inga frænka gerði athugasemd við að ég blótaði seinast, ég ætla að reyna að hemja mig í dag. Júróvisjón var nú stórfurðulegt. Þetta er reyndar mitt fyrsta júróvisjón svo það er kannski ekki nema von að ég hafi nú ekki getað giskað á að Finnarnir myndu vinna en mér fannst þeir samt mjög skemmtilegir. Haukur frændi fór heim í dag og hefur verið voðalega gaman að hafa hann. Hann hjálpaði Emelíu mömmu soldið þegar Auja mamma var í Frakklandi og munaði heldur betur um það. Hann var heldur óheppinn með veðrir og biðjumst við velvirðingar á því að hafa sagt honum að það myndi verða glampandi sól og hiti. Haukur á afmæli í dag og er orðinn 26 ára. Ég gaf honum því tvo DVD diska með furðuverkum dýranna og svo bauð ég honum á steikhús í gær. Sjáumst vonandi sem fyrst aftur! Og tveimur tímum eftir að ég var búin að fylgja Hauki í flugrútuna þá náði ég í Kötu móðursystur og Ara kærastann hennar í aðra flugrútu og ætla þau að vera hjá mér þangað til á fimmtudaginn. Langamma í Sandvík hafði nýtt sér ferðina til Svíþjóðar og sendi mér ofsalega fínan postulínsskó sem hún hafði málað blóm á og áletrað með nafninu mínu og fæðingardegi. Svo sendi hún mér líka útsaumaða klúta sem eru sérlega mjúkir og því gott að kúra með hausinn á. Takk æðislega langamma! Búin að setja inn nokkrar myndir hérna  |