Svíþjóðarferð  | 
|
| 
 
	Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins. 
	
	
 
 
 Ýmislegt 
 Linkar 
  | 
	
	
    	 mánudagur, júní 12, 2006 
   	
	Úff, það er alveg ofboðslega heitt úti í dag, 30,4 gráður eins og er. Við mamma ætlum því ekki út fyrr en seinnipartinn því það er alls ekkert notarlegt að vera í svona miklum hita. Spáð er álíka góðu veðri alla vikuna. Ég setti inn eina mynd af mömmu útældri. Ég lá á maganum á mömmu og þurfti allt í einu að æla. Þetta voru rosalegastu þrjár gusur sem mamma hefur séð. sunnudagur, júní 11, 2006 
   	
	Í gær fórum ég með mömmum mínum í picnic með billjardvinum okkar. Það var alveg steikjandi hiti og mikil sól en ég varð minnst vör við það því ég var alltaf í skugganum. Í dag var líka rosalegur hiti, 27 gráður, en við fórum samt út í labbitúr. Ég var bara á bleiunni og hafði það gott. Við prófuðum nýja leið í skóginum sem reyndist hin mesta torfæra og var stígurinn mjórri en vagninn hálfa leiðina og hallaði mikið að hluta. Auja mamma neitaði hins vegar að gefast upp og þvældi okkur áfram og eftir á að hyggja var þetta bara skemmtilegt. Við erum búnar að ná í viftuna okkar og munum stilla henni upp við fótgaflinn á næstu dögum því það er oft svo heitt á nóttunni hérna á sumrin, hef ég heyrt ;) Skoðið endilega glænýjar myndir af MÉR.  |