Svíþjóðarferð  | 
|
| 
 
	Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins. 
	
	
 
 
 Ýmislegt 
 Linkar 
  | 
	
	
    	 laugardagur, ágúst 12, 2006 
   	
	Mömmur mínar prófuðu að setja á mig mjólkurduft áðan og þar sem ég varð rauð og fékk litlar hvítar bólur þá settur þær venjulega kúamjólk og sama sagan þar. Ég er sem sagt með ofnæmi fyrir kúamjólk! Gott að vita hvað það er. Í gær drógu mömmur mínar í jólagetrauninni, þ.e. hvar við ætlum að vera á aðfangadag og gamlársdag; hjá ömmu og afa í Kópavogi, ömmu og afa í Kjalarlandi eða ömmu og afa á Brekkulæk. Mömmur mínar tókum dráttinn upp á videó og munum senda ykkur á diski í póstinum. Því miður verður ein amma og einn afi út undan í ár en þá ætlum við að vera hjá þeim á aðfangadag á næsta ári. Við höldum sem sagt að við séum svo skemmtilegar og vinsælar að við getum bara dregið um svona hluti, vonum að það sé rétt. Já, og svo klipptu mömmur mínar fullt af hárinu mínu í dag, ég er nefnilega orðin soldið þunnhærð og því frekar gamlakarlsleg í útliti. Ég skánaði samt heilmikið eftir klippinguna. Nýjar myndir af mér. fimmtudagur, ágúst 10, 2006 
   	
	Nói frændi hringdi í okkur í gær og sagði okkur að hann ætlar að koma eftir 2 vikur. Hann er nefnilega að flytja til Noregs og ætlar að túra aðeins um nágrannalöndin fyrst um sinn því hann er í tveggja mánaða fríi. Hlakka til að hitta þig, Nói! Kíkið endilega á nýjustu myndirnar af mér og restina af Íslandsmyndunum. miðvikudagur, ágúst 09, 2006 
   	
	jahá, ég er með ofnæmi fyrir barnagraut, bæði frá Nestlé og Semper. Mömmur mínar ætla því líklega ekkert að vera að prófa fleiri tegundir. Ég verð ofsalega rauð á húðinni eftir grautana og fæ litlar hvítar bólur. Þetta hverfur svo allt saman á nokkrum klukkutímum. Í kvöld fékk ég því í staðinn það sama og mömmur mínar voru að borða; kjúkling og franskar kartöflur og hef ég aldrei borðað með eins miklum áhuga. Ég var ekki búin að segja ykkur frá því að ég var nær dauða en lífi á laugardaginn var. Við höfðum verið í bænum, keyptum okkur ógó flottan prentara og horfðum smá á Gay pride gönguna. Svo ætluðum við að taka lestina heim. Auja mamma borgaði fyrir tvo og sagði að við ætluðum allar að fara í gegnum hliðið fyrir vagnana. Auja mamma fór fyrst með vagninn og svo kom Emelía mamma með mig í fanginu því ég var sofandi. En allt í einu fann ég mikinn sársauka og öskraði hástöfum í margar mínútur. Ég vissi þá ekki hvað hefði komið fyrir en frétti frá mömmum mínum að sjálfkrafa hliðið hefði skollið á hausinn á mér. Mömmur mínar fylgdust vel með mér allt kvöldið til að vera vissar um að ég hefði ekki fengið heilahristing, en ég spjaraði mig. Emelía mamma sendi síðan lestarfélaginu heldur betur reiðibréf í gær. Þið getið kíkt á myndir af fötunum sem mér voru gefin þegar við vorum á Íslandi. Ég þakka enn og aftur fyrir gjafirnar! Svo getið þið séð myndir úr Íslandsferðinni.  |