Svíþjóðarferð  | 
|
| 
 
	Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins. 
	
	
 
 
 Ýmislegt 
 Linkar 
  | 
	
	
    	 laugardagur, júlí 14, 2007 
   	
	Stelpurnar mínar fóru til Chicaco í dag. Þar verða þær í fjóra daga hjá Marie sem var skiptinemi heima hjá Auði þegar hún var 16. Ég var því í vinnunni til rúmlega 18 og hefði verið lengur ef ég hefði ekki verið búin að kaupa bíómiða á Harry Potter kl. 18:30. Sætin eru númeruð hérna eins og í Svíþjóð og því ætti ekki að vera nein ástæða fyrir átök þegar maður fer í bíó nema þá helst þegar þeir passa sig ekki á að hafa pylsurnar sínar tilbúnar fyrir kvöldsýningarnar þegar hungaðir gestirnir birtast. Pylsur áttu að vera kvöldmaturinn minn en í staðinn varð ég að seðja hungrið með poppi og m&m. Á heimleiðinni eftir sýninguna varð ég því að koma við á Grískum stað þar sem ég keypti mér einhvers konar pítu með frönskum inní, ætli þeir séu eitthvað skyldir Akureyringum þessir!! Myndin var alveg ágæt, svona eins og hinar myndirnar, eiginlega ekki fyrir minn aldurshóp en alveg hægt að hafa gaman af ef maður er Potter aðdáandi. Og svo er seinasta bókin væntanleg bráðum. Ég ætlaði að vera að vinna um helgina fyrst stelpurnar mínar eru fjarri en það ekkert að gera í vinnunni svo ég hef ákveðið að versla og fara meira í bíó. Það er alltaf jafn leiðinlegt að koma heim í tómt bú. Ég á afmæli næsta þriðjudag og fékk því smá gjöf í gær frá Auði og Önnu Eir svo ég gæti farið og skipt um helgina ef það passaði ekki. Fékk bol sem passaði og rosa kúl íþróttagalla en þarf því miður að skipta peysunni í stærri; Auður heldur að ég sé eitthvert písl. Þessa dagana er Gay & lesbian Film festival í Philadelphia. Það er ein íslensk stuttmynd til sýnis sem Auði dauðlangaði að sjá íslenska stuttmynd en missir af þar sem hún er í Chicaco. Það var því hjartansmál hjá Auði að ég færi og sæi myndina fyrir hana, svo ég á miða í bíó kl. 12 að hádegi á sunnudaginn. Ég held ég hafi ekki farið svona snemma í bíó fyrir utan þegar menntaskólinn minn (MK) fór kl. 9 á Tyllidögum fyrir allmörgum árum. Aujan mín keypti sér vax um daginn til að vaxa á sér lappirnar. Auður bar vaxið á sig, lagði pappír á og kippti af, lagði pappír á og kippti af, lagði pappír á og, já, þið skiljið hvað ég á við. Af og til heyrði ég kæft óp en þegar ég spurði hvort þetta væri vont þá neitaði hún alltaf (“allavega ekki eins vont og maður heldur”). Ég ákvað því að gera eins og Aujan mín svo ég slyppi nú að raka á mér skankana í svona eins og 4-6 vikur. Það er ekki hlaupið að því að vaxa sig, maður verður fyrst að safna hárum á lappirnar, nógu löngum en ekki of löngum! Þegar loksins kom að því þá held ég að ég hafi lagt pappír fjórum sinnum á og kippt og þá var mér nóg boðið, sársaukinn var alveg ógurlegur og sveið mig á eftir. Verst þótti mér þó að hafa ekki getað staðið það út að vaxa á mér lappirnar eins og Aujan mín. Málið er að af og til í gegnum árin hef ég boðið Auði aðstoð mína í að fjarlægja bólur og fílapensla og hefur hún þegið það fáein skipti (ekki nærri því eins oft og ég vildi). Oft höfum við þurft að hætta í miðjum klíðum því Auður var orðin bálvond og vændi mig um að vera harkalegan sadista þegar það var í raun bara hún sem var með of lágan sársaukaþröskuld (að mér fannst). Mér brá því heldur í brún þegar Aujan mín gat vaxað á sér báðar lappirnar með minniháttar öskrum og táraflóði meðan ég gat einungis kippt eins og 10 hárum (sá ekki högg á vatni!). Og það sem meira er, Auður vaxaði sig aftur í vikunni. Þegar ég hugsa málið aðeins betur og sætti mig við eigin aumingjaskap þá get ég ekki annað en glaðst yfir því að vera gift annarri eins hetju og Aujunni minni. þriðjudagur, júlí 10, 2007 
   	
	Við fórum sem sagt til New York borgar (NYC) á föstudaginn og komum til baka á sunnudeginum. Lestarferðin til NYC tók 3 tíma og skiptum við þrisvar um lest en lestarferðin til baka tók bara 1.5 tíma og þurftum við aldrei að skipta enda var sú ferð rúmlega þrisvar sinnum dýrari en við létum það eftir þreyttum ferðalöngunum. Kristín Ingvars, sem er okkar “insider” hér í Bandaríkjunum, benti okkur á best væri að fá sér hótel í New Jersey borg því hótelin í New York væru svo skítug. Við erum fínar konur og gerðum því eins og Kristín sagði og urðum sko ekki fyrir vonbrigðum. Hótelið var alveg æði, herbergið var rosalega hreint og fínt með stærsta örbylgjuofni sem ég hef séð, ísskáp, hellum og sjónvarpi. Hótelið heitir Candelwood Suites og mælum við eindregið með því. Föstudagurinn fór bara í að koma okkur á hótelið, svæfa Önnu Eir, fá okkur að borða og ná í strætómiðana okkar. Við keyptum okkur nefnilega 48 tíma strætómiða með leiðsögumanni um NYC. Í New York vorum við spurðar til vegar og gátum við leiðbeint viðkomandi. Við lítum greinilega út fyrir að vera heimsborgarar. Þegar við náðum í strætómiðana hittum við leiðsögumann sem vildi endilega vita hvaðan við vorum. Hann var Bandarískur að ég held en fór með á staðnum nokkrar línur á íslensku úr júróvisjónlaginu sem Daníel Ágúst söng fyrir okkar hönd fyrir allmörgum árum. Framburðurinn var alveg magnað góður. Hann sagðist ekki kunna íslensku en kynni sænsku og töluðum við því restina á sænsku sem hann var helvíti góður í. Sumir eru greinilega með meðfædda tungumálahæfileika. Laugardaginn og sunnudaginn ferðuðumst við um NYC í strætó eins og barnið leyfði en mikill tími fór í að gefa Önnu Eir að borða og láta hana sofa lúrinn sinn. Við ætluðum að sigla að Frelsistyttunni og skoða hana eitt skipti fyrir öll en hættum snarlega við þegar við sáum röðina. Ég hef aldrei séð eins langa röð og áætlaður tími í henni var 1 klst og 15 mín. Við létum okkur því nægja að horfa á Frelsisstyttuna frá höfninni. Í staðinn fórum við upp í Empire State bygginguna alla leið upp á 86. hæð (320 m) og horfðum yfir New York. Það er alveg frábært útsýni þaðan og mjög skemmtilegt að geta kíkt aðeins yfir fyrst við höfðum ekki tíma til að skoða meira en Manhattan. Við gáfum okkur smá tíma til að slaka á, fórum í picnic í Central park og svaf Anna Eir lúrinn sinn þar. Það er alveg þess virði að fara til NYC og sjá með eigin augum mannmergðina, alla leigubílana og húsin. Við erum allavega til í að fara aftur en helst barnlausar svo það sé hægt að slaka svolítið meira á, versla og dunda sér. mánudagur, júlí 09, 2007 
   	
	jæja, þá erum við aftur komnar frá new york. Þar var heitt og troðið en áhugavert og flott. Skemmtilegast fannst okkur að fara í Empire State building og sjá yfir borgina og að tsjilla í Central park. Set inn myndir á eftir.  |